Í aðalnámskrá grunnskóla 2011 á bls. 86 segir" Á grundvelli hæfniviðmiða velja kennarar og nemendur kennsluaðferðir, námsefni og matsaðferðir og skal gera grein fyrir þeim í skólanamskrá í viðkomandi skóla".
Í hæfnimiðuðu námi er unnið að því að nemendur tileinki sér þá hæfni sem stefnt er að. Til að svo megi verða þurfa þau viðfangsefni sem nemendur fást við að stuðla að því. Með því að skoða hæfniviðmið aðalnámskrár gaumgæfilega má sjá hvaða viðfangsefni nemendur þurfa að fást við til að öðlast þá hæfni sem hæfniviðmiðið lýsir.
Þegar nám nemenda er skipulagt er mikilvægt að það tengist hæfniviðmiðum aðalnámskrár, námsmarkmið séu skýr og viðmið um árangur einnig. Nemendur þurfa að fá endurgjöf á vinnu sína sem hjálpar þeim að ná því sem vantar upp á svo þeir nái þeirri hæfni sem að er stefnt. Námsbækur eru einungis verkfæri til að nýta þegar það á við.
Þegar nemendur stefna að tiltekinni hæfni þurfa þeir að fá tækifæri til að sýna fram á hæfni sína á fjölbreyttan hátt. Nemendur geta tekið þátt í því að ákveða hvernig þeir vilja sýna fram á hæfni sína og haft þannig enn virkari áhrif á eigið nám.