Gefnar hafa verið út samræmdar reglur á höfuðborgarsvæðinu um viðbrögð þegar röskun verður á skólastarfi vegna óveðurs. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins/stjórn Almannavarna á höfuðborgarsvæðinu hefur látið gera leiðbeinandi vinnureglur um viðbrögð í óveðri í samráði við fulltrúa sveitarfélaganna á svæðinu. Bæði er um að ræða leiðbeiningar til starfsmanna skólanna og foreldra. Aðaláherslan er á að foreldrar meta í hverju tilviki hvort þeir vilja halda börnunum heima en verða þá að tilkynna það sem leyfisbeiðni til skólans. Einnig er áhersla á að skólarnir sjái til þess að það verði alltaf einhver starfsmaður í skólunum til að taka á móti þeim sem mæta þrátt fyrir að senda hafi verið út tilkynning um að skólahald falli niður.
Tilmæli Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins til foreldra varðandi viðbrögð við óveðri.
Reglur sem gilda í óveðri
1. Skólahúsnæðið er opnað um leið og fyrsti starfsmaður mætir.
2. Allar upplýsingar eru settar á heimasíðu skólans eins fljótt og unnt er.
3. Foreldrar eru beðnir um að tilkynna fjarvistir í Mentor.
4. Tölvupóstur er sendur til foreldra eins fljótt og auðið er t.d. ef þeir þurfa að sækja nemendur að loknum skóladegi.
5. Nemendur sem mæta í skólann eru þar á ábyrgð starfsmanna.
6. Ætlast er til að foreldrar fylgi börnum sínum inn í skólann og sæki þau inn í lok skóladags.
7. Nemendur fá ekki leyfi til að hringja í foreldra sína og biðja um að vera sóttir.
8. Foreldrum er heimilt að sækja börn sín áður en skólatíma lýkur.
9. Nemendur eru inni í frímínútum á ábyrgð starfsmanna.
10. Krakkakot og leikskólinn eru opin samkvæmt auglýstum opnunartíma.