Velkomin á heimasíðu frístundaheimilis Flataskóla - Krakkakots
Starfsfólk Krakkakots býður nemendur og foreldra velkomna og vonast eftir góðu samstarfi á komandi vetri. Við leggjum metnað okkar í að í Krakkakoti líði öllum vel og að nemendur hafi af starfi okkar bæði gagn og gaman.
Hægt er hægt að sækja um dvöl á frístundaheimilinu á mínum Garðabæ.
Undir þessum link má finna gjaldskrár hjá Garðabæ og þar á meðal er gjaldskrá frístundaheimila.
Umsjónarmaður Krakkakots skólaárið 2024-2025 er Áskell Dagur Arason
Póstfang frístundaheimilisins: flataskoli-fristund@flataskoli.is
Símar: 820-8557
-
Krakkakot er opið alla virka daga nema hefðbundna frídaga frá lokum skóladags til kl. 16:30.
-
Starfstími frístundaheimila miðast við skólaárið eins og það er hverju sinni og kemur fram á skóladagatali.
-
Í jóla-, páska og vetrarfríi eru frístundaheimilin opin allan daginn á virkum dögum nema aðfangadag og gamlársdag (sbr.opnun leikskóla í Garðabæ).Öllum börnum skólans skal standa til boða dvöl þessa daga. Þetta er kynnt forráðamönnum í tölvupósti með þriggja vikna fyrirvara. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá. Sérstaklega þarf að greiða fyrir dvöl fyrri hluta dags hjá þeim börnum sem eru skráð til dvalar eftir skólatíma.
-
Á starfsdögum kennara og þá daga sem kennsla fellur niður vegna foreldraviðtala eru frístundaheimilin opin allan daginn. Öllum börnum skólans skal standa til boða dvöl þessa daga, Þetta er kynnt forráðamönnum í tölvupósti með þriggja vikna fyrirvara. Skrá skal börnin með minnst 10 daga fyrirvara. Gjald er reiknað út frá fjölda skráðra klukkustunda og miðast við tímagjald í auglýstri gjaldskrá. Á starfsdögum koma börnin með nesti að heiman.
-
Gert er ráð fyrir samstarfi frístundaheimilanna t.d. í jóla-, páska- og vetrarfríi sem og á starfsdögum og foreldradögum.
Annað íþrótta- og tómstundastarf: