Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Jólamarkaður í hátíðarsal

10.12.2015
Jólamarkaður verður í hátíðarsal skólans kl. 8.30 til 11:00 þar sem seldir verða hlutir sem nemendur hafa unnið á jólaþemadögunum 7. og 8. desember. Verkefnið heitir "Látum gott af okkur leiða" og verður afrakstur gefinn til góðgerðarmála. Söfnunarbaukur verður hjá ritara þar sem hægt verður að setja framlag til sömu mála. Nemendur leggja til hvert afraksturinn fer og síðan verður dregið úr tillögum þeirra.
Til baka
English
Hafðu samband