Jólaskemmtanir
30.11.2012
Nemendur mæta aðeins á jólaskemmtun.
Nemendur eiga að mæta í bekkjarstofur og umsjónarkennari fylgir þeim í hátíðarsalinn. Vinabekkir eru saman á jólaskemmtun. Gengið er í kringum jólatréð, sungið og dansað. Nemendur í 2., 4. og 6. bekk sjá um skemmtiatriði og nemendur í 5. bekk flytja helgileik. Forráðamönnum er velkomið að líta við og taka þátt í jólaskemmtuninni.
Nemendur fara heim að lokinni skemmtun en opið er í Krakkakoti fyrir þá nemendur sem eru þar. Nemendur eiga að mæta á jólaskemmtun á þessum tímum:
Kl. 8:30- 10:30
|
Kl. 11:00 – 13:00
|
5 ára og 7. bekkur 1. RS og 5. EÁ 2. AH og 4. HÞ 3. MH og 6. HL
|
1. AG og 5. EÞ 2. ÁS og 4. KÞ 3. RG og 6. OS
|