Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Flataskólaleikar

06.06.2012
Flataskólaleikar

Hinir árlegu Flataskólaleikar voru haldnir í morgun. Veður var að vísu ekki eins gott og undanfarna daga, því það var frekar kalt, en þátttakendur hristu það af sér og tóku óspart þátt í leikunum.  Keppt var í ýmsum skemmtilegum íþróttagreinum eins og hælaharki, reiptogi, krikket, boccia, kubbaspili, boðhlaupi, dekkjahlaupi og síðan erum við svo heppin að vera með hreystibrautina nánast á skólalóðinni þannig að hún var að sjálfsögðu með í leikunum. Nemendum var skipt í hópa þvert á árganga og kenndu hinir eldri þeim yngri reglurnar um hvernig þetta átti allt saman að fara fram.

Í hádeginu voru svo grillaðar pylsur fyrir alla úti við og svali drukkinn með.

Allt þetta gekk mjög vel og sjá má myndir frá leikunum í myndasafni skólans.

Til baka
English
Hafðu samband