Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Tón list fyrir alla

26.03.2012
Sú dagskrá sem TFA býður grunnskólum í Garðabæ núna er "Tónamínútur" í  flutningi Áshildar Haraldsdóttur, flautuleikara, - sjá nánari  upplýsingar á www.tonlistfyriralla.is - "tónlistarhópar" - Áshildur Haraldsdóttir.  Þetta er ný dagskrá, en hluti af henni (verk Atla Heimis) var reyndar  fluttur af Manuelu Wiesler í norskum og sænskum skólum fyrir um 20 árum við mjög góðar undirtektir.  Þetta er mjög spennandi og metnaðarfull dagskrá sem hentar  öllum aldursstigum, en Áshildur nálgast flutninginn dálítið mismunandi eftir því hvaða aldur hún er að spila fyrir. Nemendur  eru mjög virkir mest allan tímann í allskonar leikjum, - hreyfingum, klappi og hljóðum.
Til baka
English
Hafðu samband