Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Íþróttadagur

03.06.2011
Íþróttadagur

Hinn árlegi íþróttadagur Flataskóla var í dag og vorum við heppin með veður þótt frekar kalt væri í lofti þá skein sólin annað slagið. Að venju var margt í boði fyrir nemendur m.a. brennó, bandý, þríþraut, boggia, boðhlaup, þrautabrautin og fleiri boltaleikir. Tóku nemendur góðan þátt í íþróttunum.  Í hádeginu bauð skólinn síðan upp á pylsur og svala. Sjötti bekkur var með gesti í heimsókn sem voru nokkrir nemendur og foreldrar frá Svíþjóð og tóku þeir þátt í íþróttunum með gestgjöfunum. Hér er hægt að skoða myndir.

Til baka
English
Hafðu samband