Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólasetning

24.08.2010
SkólasetningStarfsfólk skólans hefur undanfarna viku verið að undirbúa vetrarstarfið og komu nemenda í skólann og vonum við að allir séu nú tilbúnir að takast á við verkefni skólaársins. Í morgun komu svo nemendur í skólann í þremur hópum. Fyrsti hópurinn kom klukkan níu og síðan komu hinir á klukkutíma fresti.  Gaman var að sjá hve margir foreldrar fylgdu börnum sínum þennan fyrsta skóladag og hve börnin voru útitekin og litu vel út. Öll höfðu þau stækkað og þroskast eins og þau gera ætíð yfir sumarið og var mikil eftirvænting hjá kennurunum að taka á móti þeim og hefja starfið.  Hér má sjá nokkrar myndir af skólasetningunni.
Til baka
English
Hafðu samband