Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

2. og 4. bk. námskynningar

08.09.2009
Þriðjudagur 8. september 2. og 4. bekkur kl. 8:30-9:30
Foreldrar í 2. bekk eiga að mæta í hátíðarsalinn (gengið inn um aðalinngang) en foreldrar í 4. bekk mæta í bekkjarstofur barna sinna.
Umsjónarkennarar munu kynna skipulag skólastarfsins og í 4. bekk verður auk þess fjallað um fyrirkomulag samræmdra prófa. Bekkjarfulltrúar munu leiða umræður um félagsstarf bekkjarins. Bekkjarfulltrúar verða valdir til að vera m.a. tengiliðir við Foreldrafélag Flataskóla. Þess er vænst að allir foreldrar sjái sér fært að koma á fundinn.
Nemendur í 2. bekk eiga að mæta samkvæmt stundaskrá í bekkjarstofur sínar en nemendur í 4. bekk í tölvuverið.
Vegna mikillar bílaumferðar við skólann er foreldrum bent á að hægt er að nýta bílastæði við Garðatorg.
Til baka
English
Hafðu samband