Flataskóli

Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar
11.10

Brunaæfing

Brunaæfing
Í vikunni var haldin brunaæfing í skólanum. Rýmingin gekk vel fyrir sig og flestir árgangar stóðu sig mjög vel í að mynda raðir...
Nánar
07.10

1.-2.bekkur - Ástarsaga úr fjöllunum

1.-2.bekkur - Ástarsaga úr fjöllunum

Þann 25. september var nemendum í 1. og 2. bekk boðið að koma í Hörpu...

Nánar
02.10

Tilkynning frá Krakkakoti

Tilkynning frá Krakkakoti
Krakkakotsfréttir hafa hafið göngu sína þennan veturinn. Fréttabréfið kemur út í lok hvers mánaðar og inniheldur myndir ásamt...
Nánar
Fréttasafn

Hér má finna fréttabréf fyrir skólaárið 2024-2025. Skólastjóri sendir út fréttabréf til foreldra einu sinni í mánuði og Krakkakot frístundaheimili gefur út Krakkakotsfréttir einu sinni í mánuði, 

Fréttabréf til foreldra: 

Krakkakotsfréttir: 



Skipulag frístundar 2024 - 2025

Frístundaheimilið Krakkakot er í boði fyrir börn í 1. -4. bekk. Krakkakot opnar þegar skóla lýkur kl. 13:30 og er opið til kl. 16:30.

Í Krakkakoti eru 88 börn. Börnunum er ekki skipt upp í hópa heldur velja börnin sér sjálf hvað þau vilja gera á hverjum degi á valtöflunni okkar í miðrými Krakkakots.

Umsjónarmaður Krakkakots er Áskell Dagur Arason, askellar@flataskoli.is

Símanúmerið í Krakkakoti er 820-8557 og netfangið flataskoli-fristund@flataskoli.is

Í Krakkakoti vinna: Askur, Aþena, Elvira, Justyna, Kolbrún, Stacy og Thelma.

Heimferðir
Við skráningu barns í Krakkakot er merkt inn hvort barnið megi sjálft ganga heim eða hvort það verði sótt. Nauðsynlegt er að virða það sem þið hafið sett fram, ef það þarf að skrá breytingu þarf að senda inn breytingabeiðni á þjónustugátt Garðabæjar eða inn á vala.is . Ef til þess kemur að breyta þurfi fyrirkomulagi dag og dag er mikilvægt eða koma skilaboðum til forstöðumanns með tölvupósti á askellar@flataskoli.is fyrir kl 13 á daginn. Sé póstur sendur eftir kl 13 er ekki víst að boðin komist til skila. Einnig viljum við biðja foreldra að virða skráðan vistunartíma barna. Þegar börnin eru sótt er afar mikilvægt að finna næsta starfsmann og láta vita svo hægt sé að merkja börnin út.

Skipulagsdagar
Krakkakot er opið alla daga sem grunnskólar eru starfandi. Á skipulags og samráðsdögum eru langir dagar þ.e opið allan daginn frá kl. 08:30 til 16:30. Þó er Krakkakot með tvo starfsdaga á ári.

Dagatal frístundar 2024 - 2025: Frístundadagatal Krakkakots 2024-25.pdf

 

Menntun - Árangur - Ánægja

Í Flataskóla er ýtt undir seiglu, sjálfstæði, skapandi hugsun, sjálfstjórn og  samkennd nemenda og starfsfólks. Námið í skólanum er áhugavert, gerðar eru skýrar væntingar til nemenda og öllum gert kleift að vaxa. 

  

Símanúmer

Krakkakot:  820-8557

Íþróttahús: 565-8066

 

English
Hafðu samband