Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

1.-4. bekkur - lestrarátakið Lesum saman - verum saman

29.01.2009
1.-4. bekkur - lestrarátakið Lesum saman - verum samanLestrarátakið "Lesum saman - verum saman" er nú haldið í fyrsta sinn í Flataskóla. Næstu vikurnar verður unnið að þessu verkefni í 1.-4. bekk. Markmiðið er að auka lestrarfærni og lesskilning og hafa áhrif á lestrarvenjur og lestraráhuga nemenda. Lesturinn fer bæði fram í skólanum og heima en kemur ekki í staðinn fyrir hefðbundinn heimalestur. Í skólanum verður gefinn tími til hljóðlestrar í a.m.k. 15 mínútur. Foreldrar lesa heima í 15 mínútur á dag fyrir barnið. Við vonum að undirtektirnar verði góðar þannig að lestraráhugi og lestrarfærni barnanna aukist við þetta átak. Af þessu tilefni verður bókasafn skólans opið mánudaginn 2. febrúar og þriðjudaginn 10. febrúar þar sem hægt verður að fá lánaðar bækur og taka þátt í getraun safnsins. Þá verður einnig heitt á könnunni. Föstudaginn 13. febrúar verður svo dregið í getrauninni um leið og verkefninu lýkur. Sjá nánar hér.
Til baka
English
Hafðu samband