Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Námskynningarfundir alla vikuna

08.09.2008

Námskynningarfundir verða vikuna 8. - 13. september 2008

Á námskynningarfundum eru foreldrar boðaðir til fundar með umsjónarkennara í kennslustofu nemenda. Þá er vetrarstarfið kynnt og foreldrar fá tækifæri til að ræða ýmis mál varðandi skólastarfið og félagsleg samskipti nemenda.  Foreldrar velja tvo til fjóra bekkjarfulltrúa en þeir eru fulltrúar hópsins í bekkjarstarfi og árgangastarfi.  Einn fulltrúi er valinn fyrir hönd árgangsins í stjórn foreldrafélagsins.

Foreldrar í 4. bekk koma fyrst saman á sal. Þar er fyrirkomulag samræmdra prófa kynnt. Eftir kynningu á sal fara foreldrar með umsjónarkennara í stofu barnanna þar sem skólastarfið er kynnt.

5. bekkur er í dag frá 8.10 til 9:10

Til baka
English
Hafðu samband