Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nemendur í 6. bekk unnu Flatóvision með laginu "Nótt".

Flatóvisionhátíðin var haldin í skólanum í níunda sinn þann 16. mars s.l. en þetta verkefni hefur verið árlegur viðburður í skólastarfinu frá 2009. Keppnin er haldin til þess að finna lag í eTwinningverkefnið Schoolovision sem er evrópst samskiptaverkefni sem skólinn tekur þátt í ásamt um 40 öðrum skólum. Sigurlag Flatóvision að þessu sinni var lagið "Nótt" sem Aron Hannes flutti í söngvakeppni sjónvarpsins í ár og voru það nemendurí 6. bekk sem fluttu lagið.  Í Flatóvision fá nemendur úr 4. til 7. bekk að koma með atriði (lag og dans) sem þau velja sjálf og æfa (með tilliti til reglna sem settar eru hverju sinni) og hefð hefur einnig skapast fyrir því að nemendur í yngri bekkjum koma með skemmtiatriði. Gestadómari að þessu sinni var Hildur Kristín Stefánsdóttir. Einnig komu nemendur úr Garðaskóla, fyrrum nemendur í Flataskóla  þær Snæfríður og Anna Katrín úr 10. bekk sem gestadómarar.

Myndir frá hátíðinni er hægt að skoða í myndasafni skólans.

 

Myndband frá Flatóvision hátíðinni í mars 2017.

  

Myndband sem sent var inn í Schoolovision keppnina í maí 2017.

 Til baka

English
Hafðu samband