Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

 

Flataskóli tekur nú sjötta árið í röð þátt í etwinningverkefninu Schoolovision.  Í fyrra sendum við lagið "Little Talks" sem hljómsveitin  "Of Monsters and Men" gerðu frægt. Stelpurnar í 6. bekk komu með þetta framlag í Flatóvision og unnu. Flatóvision er haldin sem undankeppni fyrir Schoolovision ár hvert og þar fá nemendur í 4. til 7. bekk að koma með atriði að eigin vali en þó þurfa þeir að fara eftir reglum keppninnar hverju sinni. Með þessu atriði hrepptum við 5. sætið í schoolovision 2013.


Nánari upplýsingar um þetta verkefni er að finna á bloggsíðum þess frá fyrri árum.

Eins og undanfarin ár hefur verið venja að vera með undankeppni fyrir Schoolovision og er það nefnt Flatóvision.  og er það haldið að hætti Eurovision föstudaginn 14. mars 2014, þar sem nemendur í 4. til 7. bekk geta komið með atriði (söng og dans). Það atriði sem vinnur verður sent í Schoolovision 2014 sem er samskiptaverkefni á eTwinning-netinu meðal um 40 skóla í Evrópu. 

-------ooo00ooo-------      ------ooo00ooo-------    --------ooo00ooo--------

Reglur keppninnar í ár eru nánast þær sömu og í fyrra en þær eru:
  1. Aðeins einn skóli frá hverju landi má taka þátt og er Flataskóli fulltrúi Íslands í þessu verkefni.
  2. Velja má söng/dans að eigin vali og það má syngja á hvaða tungumáli sem er. Það má vera þekkt lag, þjóðlag eða lag sem nemendur búa til sjálfir, lag sem enginn hefur heyrt áður. Lagið þarf að tengjast landinu á einhvern hátt. Lag þarf að vera eftir íslenskan höfund. Textinn getur t.d. verið um vináttu, umhverfismennt, frið, fólk o.s.frv. 
  3. Ef lagið sem verður valið er verndað með höfundaleyfi þá þarf að fá leyfi höfundar til að setja lagið í Schoolovision. 
  4. Undirleikur má vera leikinn af nemendum, af CD-diski eða af foreldrum/kennurum. 
  5. Enginn hjálparsöngur né bakraddir mega vera í upptökunni. Nemendur verða að syngja allt lagið sjálfir. 
  6. Klæðnaður á sviði skal vera við hæfi 9 til 12 ára barna. 
  7. Æfingar í sal byrja mánudaginn 10. mars. Ekki er gefið leyfi til að vera inni í frímínútum til að æfa fyrir þann tíma. 
  8. Staðfesta þarf hjá Jóni Bjarna eða Kolbrúnu hvaða lög verða flutt á Flatóvision fyrir 4. mars (þriðjudagur).

Á bloggsíðu Schoolovision 2014 er að finna frekari upplýsingar og ýtarlegri umfjöllun um reglurnar (á ensku).

English
Hafðu samband