Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Nemendum sem koma á hjólum í skólann ber að fara eftir siðum skólans og geyma þau læst í hjólagrindum á skólatíma. Minnt skal á það að nemendur eiga að nota hjólahjálma og virða allar öryggisreglur sem gilda um hjól. Sama gildir um það ef nemendur koma á hjólabrettum, hlaupahjólum eða línuskautum. Í frímínútum mega nemendur nota hjólabretti á ákveðnu svæði á skólalóðinni með því skilyrði að þeir séu með hjálma. Nemendur bera sjálfir ábyrgð á hjólum sínum og öðrum hlutum sem þeir koma með í skólann. Athygli er vakin á því að samkvæmt umferðarlögum er ekki mælt með því að börn yngri en 13 ára séu á rafdrifnum hjólum.

English
Hafðu samband