Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kynningar á skólum

Auglýsingar

Skóladeild í samráði við skólastjórnendur ákveður og auglýsir innritun í grunnskóla að vori. Dagsetningar skuli ákveðnar eigi síðar en í janúar. Innritun skal lokið fyrir 1. apríl. Deildarstjóri skóladeildar tekur saman upplýsingar í samráði við grunnskólana varðandi auglýsingar og kynningar skólanna á eigin starfi og birtir í prentmiðlum og á vef Garðabæjar. Skóladeild sendir foreldrum barna í viðkomandi árgangi bréf um innritun í 8. bekk. Garðaskóli og Sjálandsskóli auglýsa kynningarfundi með aðstoð hinna skólanna sem senda kynningarbréf til foreldra nemenda sinna í gegnum upplýsinga- og menntavefinn Mentor.

Heimsóknir 7. bekkinga

Garðaskóli og Sjálandsskóli bjóða nemendum í 7. bekk í heimsóknir á skólatíma í samráði við hina skólana. Markmið þessara heimsókna er að nemendur komi inn í skólana á skólatíma, fái stutta kynningu frá stjórnendum og nemendum, geti spurt spurninga og kynnist skólabraginum. Nemendur og nemenda¬ráðgjafar Garðaskóla og Sjálandsskóla bjóðast til þess að koma í heimsóknir til nemenda í 7. bekk og spjalla við þá.

Kynningarfundir í skólum

Haldnir eru kynningarfundir fyrir nemendur og foreldra í Garðaskóla og Sjálandsskóla  í upphafi innritunartímabils í febrúar eða mars. Auk þess er tekið á móti einstaka nemendum og foreldrum þeirra í heimsóknir þar fyrir utan ef áhugi er fyrir hendi. Á fundunum er farið yfir helstu atriði í skólastarfinu og skólahúsnæðið skoðað.

Til baka

English
Hafðu samband