Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Vikan 12. til 17. desember

19.12.2016
Vikan 12. til 17. desember

Vikan hefur heldur betur verið skemmtileg. Jólasveinarnir komu til byggða einn af öðrum og börnin voru spennt að ræða um þá. Þau æfðu sig í framsögn, bæði með því að segja frá og einnig í að vera góðir hlustendur. Umræðuefnið var augljóst, jólaveinarnir.

Jóladagatalið vakti lukku en það er jólatré  með kúlum sem hangir á veggnum. Á hverjum degi fær einn að snúa við einni kúlu. Á bakhlið  hennar stendur hvað á að gera þann daginn sem getur verið t.d. leikur, syngja lag, fá sögu eða jafnvel að fá heitt kakó o.frv. Annað sem var á dagskrá í vikunni var jólakortagerð sem endaði á að nemendur fóru á pósthúsið og sendu sjálfum sér kortið. Á mánudaginn var sýnt jólaleikritið Langleggur og Skjóða. Jólamarkaður Flataskóla var á miðvikudaginn og fór upphæðin sem safnaðist að þessu sinni til AHC samtakanna á Íslandi. Á föstudag var svo boðið upp á kaffihús í hátíðarsal með vinabekknum sem er 7. bekkur. Inn á milli alls þessa brugðu krakkarnir sér af og til út til að viðra sig.

Í vikunni var svo stafurinn N  krufinn til mergjar  og 4 ára börnin fengu söguna um E í bókinni Lubbi sem finnur málbein.

Þriðjudaginn 20. desember verður jólaskemmtunin, það verður fluttur helgileikur í sal og síðan fara börnin út í íþróttahús og dansa í kringum jólatréð.

Til baka
English
Hafðu samband