Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skólastarf eftir vetrarfrí

19.02.2023
Skólastarf í Flataskóla hefst að nýju á mánudaginn, 20. febrúar, kl. 11:00.  

Nemendur mæta sem hér segir  
1. bekkur - sami inngangur og venjulega í austurálmu skólans
2. bekkur - sami inngangur og venjulega í austurálmu skólans
3. bekkur - sami inngangur og venjulega í miðálmu skólans
4. bekkur - sami inngangur og venjulega í vesturálmu skólans
5. bekkur - ATH inngangur í norðurálmu skólans
6. bekkur - sami inngangur og venjulega í vesturálmu skólans
7. bekkur - Lausar kennslustofur og rými á Garðatorgi - forráðamenn 7. bekkjar fá sérstakan póst með leiðbeiningum

Mötuneytið fer í gang strax á mánudag, nemendur munu matast á venjulegum tímum skv. stundaskrá og skóladegi lýkur einnig skv. stundaskrá.

Framkvæmdir síðustu tvær vikurnar gengu nokkurn veginn samkvæmt áætlun en það er smá frestun á afhendingu þriggja kennslustofa sem hefur áhrif á niðurröðun í húsið fyrstu dagana. Milli Flataskóla og Garðaskóla er komin húseining með tveimur kennslustofum sem mun nýtast okkur næstu mánuðina og á næstu tveimur vikum verður sett niður önnur tveggja kennslustofu eining á skólalóðina.  Að minnsta kosti tvær kennslustofur til viðbótar í skólahúsinu verða tilbúnar í vikunni   Það verða því nokkrar tilfæringar hjá okkur næstu dagana og vikurnar sem mun reyndar aðallega snúa að nemendum í 6.-7. bekk og list- og verkgreinakennslu.  Við upplýsum um allar breytingar sem varða staðsetningar nemenda um leið og framþróun verður í þeim málum hjá okkur. 
Til baka
English
Hafðu samband