Árgangahandbækur skólaársins 2022-2023
20.09.2022

Kennarar hafa lokið við að vinna árgangahandbækur skólaársins 2022-2023 og þær hafa nú verið birtar á heimasíðu skólans.
Árganganámskrár eru yfirlit yfir nám og kennslu hvers skólaárs í viðkomandi árgangi. Þar koma fram upplýsingar um markmið yfirstandandi skólaárs og að hvaða hæfni er stefnt.
Árganganámskrár Flataskóla eru settar upp í samræmi við hæfniviðmið aðalnámskrár grunnskóla. Kennarar völdu hæfniviðmið sem þeir ætla að vinna meðúr aðalnámskránni og skilgreindu viðfangsefni sem ýta undir þá hæfni sem stefnt er að og síðan völdu þeir þær leiðir sem farnar verða til að þjálfa/stuðla að og/eða ná hæfninni.