Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Kór Flataskóla byrjar aftur!

01.09.2022
Kór Flataskóla byrjar aftur!

Nú ætlum við að fara af stað aftur með kórinn í Flataskóla og viljum við hvetja öll börn í 3.- 7. bekk sem vilja syngja að koma og vera með. Æfingar verða einu sinni í viku, miðvikudögum kl. 14:15-15:15 og kórstjóri verður Sólveig Unnur Ragnarsdóttir. Í kór lærir maður ýmislegt gagnlegt sem á eftir að nýtast manni í framtíðinni, meðal annars:

  • Syngja í hóp og finna samhljóm
  • Standa og fylgja fyrirmælum
  • Skilning og framburð á texta
  • Túlkun tilfinninga
  • Þjálfa tóneyrað
  • Frábær félagsskapur og vinátta
  • Koma fram á viðburðum og tónleikum

Foreldrar geta skráð börn sín með því að senda tölvupóst á Sólveigu á vocalist@vocalist.is með upplýsingum um nafn barns og bekk. 

Við byrjum 7. september og hlökkum til að fara af stað aftur með kórastarfið. 

Til baka
English
Hafðu samband