Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Öskudagur 26. febrúar

17.02.2020
Öskudagur 26. febrúarMiðvikudaginn 26. febrúar er öskudagur og þá verður skólastarfið með breyttu sniði hjá okkur í Flataskóla. Skólinn byrjar á sama tíma og venjulega, klukkan 8:30 og allir mæta í sínar heimastofur. Dagskráin verður með fjölbreyttu sniði. Nemendur fara ekki í sund eða íþróttir.

Börnin borða hádegismat á sínum tíma og það verður pizza í matinn. Þeir nemendur sem eru ekki skráðir í áskrift þennan dag geta keypt miða í matsal mánudaginn 24.- og þriðjudaginn 25. febrúar. Miðinn kostar 600 kr.

Þeir nemendur sem vilja eða hafa tök á mega fara heim klukkan 12:30. Við viljum biðja foreldra/forráðamenn að láta umsjónarkennara vita með tölvupósti ef börn þeirra mega fara fyrr heim. Tómstundaheimilið Krakkakot verður opið á sama tíma og venjulega og börnin í 4 og 5 ára eru að sjálfsögðu sinn tíma í skólanum. Fyrir þá sem eru áfram í skólanum verður boðið upp á afþreyingu til skólaloka. Eftir kl. 14:00 fara þeir sem eiga að vera í Krakkakoti þangað en aðrir fara heim.
Til baka
English
Hafðu samband