Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Dagskrá í desember

02.12.2019
Dagskrá í desember

13. des. Jólapeysudagur – Allir nemendur og starfsmenn hvattir til að koma í jólapeysum eða einhverju jólatengdu.

19. des. Síðasti kennsludagur fyrir jólaleyfi. Nemendur í 5. bekk sýna helgileik. Jólamatur í matsal, þeir sem ekki eru í áskrift geta keypt matarmiða á 600 kr. hjá starfsmönnum Skólamats (eru seldir til 13. des.).

20. des.  Jólaskemmtun og litlu jól í bekkjastofum.     

  • Kl. 9:00 -10:30  1., 2., og 6. bekkur 
  • Kl. 9:30 -11:00  4 og 5 ára, 4.  og 7. bekkur 
  • Kl. 10:00-11:30  3. og 5. bekkur

 Börnin mæta aðeins á jólaskemmtunina. Engin kennsla þann dag.

Krakkakot opnar kl. 10:30 fyrir þau börn sem þar eru skráð og opið er í 4 og 5 ára bekk.

Önnur börn fara heim að lokinni jólaskemmtun.       

Dagana 23., 27. og 30. desember og fimmtudaginn 2. janúar er opið í Krakkakoti og 4 og 5 ára bekk.

Skólastarf hefst aftur að loknu jólaleyfi grunnskólans föstudaginn 3. janúar 2020 samkvæmt stundaskrá.

 

 

Til baka
English
Hafðu samband