Skíðaferðir 11. - 14. mars
08.03.2019
- Mánudaginn 11. mars fara nemendur í 6. bekk síðdegis og gista í Breiðabliksskálnum og verða á skíðum á þriðjudeginum.
- Þriðjudaginn 12. mars fara börnin í 2. og 5. bekk.
- Miðvikudaginn 13. mars fara börnin í 4/5 ára, 3. og 7. bekk.
- Fimmtudaginn 14. mars fara börnin í 1. og 4. bekk.
Mæting í skólann þessa daga er klukkan 8:30 og þá koma nemendur með allan búnað með sér. Geyma búnaðinn fyrir framan anddyri á svæði sem er merkt þeirra árgangi og fara í heimastofur.
Lagt af stað frá Flataskóla kl. 9:00. Farið verður af stað frá Bláfjöllum upp úr kl. 13:30 og áætluð koma í Flataskóla er um kl. 14:30.
Krakkakot er opið við heimkomu fyrir þá sem eru þar skráðir.
Nánari upplýsingar um ferðina hafa verið sendar foreldrum í tölvupósti.