Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Ævar af­henti forsetisráðherra skila­boð frá nemendum í Flataskóla

21.11.2018
Ævar af­henti forsetisráðherra skila­boð frá nemendum í Flataskóla

Skilaboð barnanna eru meðal ann­ars að: öll börn eiga að fá vernd gegn of­beldi, öll börn eiga að ganga í skóla, öll börn eiga að fá hreint vatn og heim­ili, eiga vini og fjöl­skyldu og að stelp­ur og strák­ar eiga jafn mik­inn rétt til að tjá sig.

Katrín tók vel í skila­boðin og sagði það vera mik­inn heiður að fá þau af­hent. „Þetta skipt­ir mjög miklu máli að fá að heyra hvað börn­in hafa að segja,“ sagði Katrín. Hún sagði að á næsta ári væri ætl­un­in að halda sér­stakt barnaþing, í fyrsta skiptið á Íslandi, þar sem börn hvaðanæva af land­inu geta sett mál­efni á dag­skrá. Hún sagði einnig að mál­efni barna væru eitt af for­gangs­mál­um Íslands í Mann­rétt­indaráði Sam­einuðu þjóðanna. „Það skipt­ir máli að passa upp á öll börn í heim­in­um,“ sagði Katrín.

Frétt í Krakka RÚV

Fréttin á Mbl.is

Til baka
English
Hafðu samband