Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sumarlæsisdagatal

16.06.2017
Sumarlæsisdagatal

Út er komið læsisdagatal Menntamálastofnunar. Læsisdagatal getur verið skemmtileg leið til að hvetja börn til lestrar í sumarfríinu en eins og rannsóknir sýna er ástæða til að halda áfram að æfa lestur yfir sumartímann. Sérfræðingar Menntamálastofnunar hafa unnið eitt slíkt foreldrum til stuðnings. Læsisdagatalið inniheldur fjölmargar spennandi leiðir að lestri, flestar fyrir börn sem eru farin að lesa. Ef barnið þitt hefur ekki náð tökum á lestri getur þú samt sem áður nýtt hugmyndirnar en þú gætir þurft að aðlaga þær að getu barnsins. Við hvetjum þig til að heimsækja bókasafnið með barninu og stuðla þannig að því að barnið geti valið bækur út frá áhugasviði. Læsisdagatalið er annars vegar útfyllt með hugmyndum og hins vegar óútfyllt þannig að hægt er að fylla inn í það út frá áhuga og aðstæðum. Hér er krækja á síðu Menntamálastofnunar þar sem hægt er að nálgast dagatalið. Hægt er að prenta læsisdagatalið út eða vista í tölvu, skrá inn dagsetningar og nafn mánaðar og fylla síðan dagana með skemmtilegum og hvetjandi hugmyndum að lestri. Læsisdagatalið getur nýst á fjölbreyttan máta s.s. inni á heimilum, í leikskólum, á ferðalagi og í frístundastarfi með börnum.

Til baka
English
Hafðu samband