Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

4. sætið í Schoolovision

12.05.2017
4. sætið í Schoolovision

Uppskeruhátíð í eTwinning samskiptaverkefninu Schoolovision 2017 var í morgun en það er verkefni rúmlega 30 grunnskóla frá mismunandi löndum í Evrópu. Allt var til staðar í hátíðarsalnum og bein útsending hófst klukkan átta í morgun og vorum við tilbúin að kynna stigin okkar til hinna þegar tæknin brást og ekki náðist samband aftur. En niðurstöðurnar komu samt sem áður fljótlega á vefsíðu verkefnisins þar sem stjórnandi verkefnisins var svo forsjáll að vera búinn að fá stigagjöfina frá þátttakendum daginn áður. 

Við hlutum 4. sætið með laginu "Nótt" sem nemendur í 6. bekk fluttu í Flatóvision.  Í fyrsta sæti var lag frá Spáni. Hægt er að lesa frekar um verkefnið á heimasíðu skólans. 

 

Til baka
English
Hafðu samband