Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Fréttir frá 4. bekk

02.11.2016
Fréttir frá 4. bekk

Nemendur í fjórða bekk fóru í heimsókn til listamannsins Birgis í Grósku á Garðatorgi í morgun. Hann tók vel á móti þeim og sagði þeim hvernig hann ynni allt frá því að gera skissur af því sem hann ætlaði að búa til og þar til listaverkið væri tilbúið. Myndir frá heimsókninni eru komnar í myndasafn skólans. Í gærkvöldi var svo hrekkjavaka sem foreldrar sáu um og skipulögðu frá A til Ö, þ.e.a.s. búningar, veitingar og leikir. Myndir frá hrekkjavökunni eru einnig komnar í myndasafnið og þær segja meira en nokkur orð.

Til baka
English
Hafðu samband