Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Stuttmyndanámskeið og RIFF

03.10.2016
Stuttmyndanámskeið og RIFF

Á listadögum Garðabæjar síðastliðið vor tóku nemendur úr 6. bekk Flataskóla þátt í stuttmyndanámskeiði á vegum Riff og Garðabæjar. Námskeiðið var fyrir nemendur úr 6. bekk í Hofsstaðaskóla og Flataskóla en einnig tóku þátt nemendur úr 9. bekkjum Álftanesskóla, Sjálandsskóla og Garðaskóla. Tíu nemendur komu úr hverjum skóla. Börkur Gunnarsson leikstjóri sá um kennsluna ásamt Söndru Guðrúnu Guðmundsdóttur klippara. Farið var í handritagerð, tökur og klippingu með nemendum og síðan vann hver hópur sína stuttmynd, alls voru búnar til tíu stuttmyndir. Nemendur í Flataskóla bjuggu til tvær, önnur var viðtal þar sem hópurinn fór í heimsókn í ríkisútvarpið og tók viðtal við Hraðfréttapiltana. Hin myndin var glæpamynd þar sem reynt var að upplýsa morð. Riff sýndi myndir hópanna í Norræna húsinu sunnudaginn 2. október og var nemendum og fjölskyldum þeirra boðið á sýninguna. Í lok sýningar afhenti Sigríður Hulda Jónsdóttir formaður skólanefndar nemendum viðurkenningar fyrir þátttöku á námskeiðinu. Hægt er að skoða myndir í myndasafni skólans.

Til baka
English
Hafðu samband