Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2016

17.03.2016
Lokahátíð Stóru upplestrarkeppninnar 2016

Lokahátíð "Stóru upplestrarkeppninnar" fór fram í Garðabæ í gær, 15. mars. Keppendur voru tólf talsins. Þeir komu frá Álftanesskóla, Flataskóla, Hofsstaðaskóla, Sjálandsskóla, Vífilsskóla, Grunnskóla Seltjarnarness og Valhúsaskóla. Það komu tveir keppendur frá hverjum skóla. Fyrir hönd Flataskóla kepptu Júlíana Karitas Jóhannsdóttir og Bryndís Brynjúlfsdóttir og varamaður var Guðný Hlín Kristjánsdóttir. Nemendur lásu samfelldan texta úr skáldsögunni  "Flugan sem stöðvaði stríðið" eftir Bryndísi Björgvinsdóttur, ljóð eftir Guðmund Böðvarsson og ljóð að eigin vali. Allir þátttakendur stóðu sig með prýði og úrslit keppninnar urðu þau að Júlíana Karitas Jóhannsdóttir, Flataskóla, varð í 1. sæti, Bryndís Brynjúlfsdóttir, Flataskóla, í 2. sæti og Júlía Óskarsdóttir, Valhúsaskóla í 3. sæti. Skemmtiatriði voru frá öllum skólunum og Jóhannes Bjarki Másson, Flataskóla lék tvö lög á harmonikku "Nu skal vi skötra og Á sprengisandi.
Hátíðinni lauk með því að keppendur fengu bókagjöf og sigurvegarar fengu auk þess peningaverðlaun og viðurkenningarskjal frá "Röddum", samtökum um vandaðan upplestur og framsögn. Varamenn fengu rós frá Garðabæ.Veitingar í hléi voru í boði Mjólkursamsölunnar og Garðabæjar.

Til baka
English
Hafðu samband