Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lestrarátak Ævars

13.01.2016
Lestrarátak Ævars

Nemendur skólans eru hvattir til lesturs. Þann 1. janúar hófst lestrarátak Ævars vísindamanns. Átakið stendur til 1. mars 2016 og er fyrir alla krakka í 1.-7. bekk.
Lestrarátakið virkar þannig að fyrir hverjar þrjár bækur sem nemendur í 1. - 7. bekk lesa fylla þau út miða sem þau sækja í gegnum www.visindamadur.is eða fá á bóksafni skólans. Foreldri eða kennari kvitta á miðann og svo verður hann settur í kassa sem er á bókasafni skólans.
Í lok átaksins verða miðarnir sendir til Heimilis og skóla, en starfsfólkið þar munu sjá um að taka við þeim. Því fleiri bækur sem börnin lesa því fleiri miða eiga þau í pottinum. Það skiptir engu máli hvort bókin sem er lesin sé löng eða stutt, teiknimyndasaga, myndasögusyrpa eða skáldsaga - bara svo lengi sem börnin lesa.
Sömuleiðis skiptir tungumálið sem bókin er á ekki máli. Bækurnar mega vera á íslensku, dönsku, frönsku, pólsku, japönsku, ensku o.s.frv.

Í lok átaksins dregur Ævar út nöfn fimm barna og fá þau í verðlaun að verða persónur í nýrri ævintýrabók sem hann er að skrifa (Bernskubrek Ævars vísindamanns 2: Árás vélmennakennaranna) sem kemur út með vorinu hjá Forlaginu - svo það er til mikils að vinna.


Til baka
English
Hafðu samband