Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

100 miðaleikur hófst í dag

09.11.2015
100 miðaleikur hófst í dag

Í dag hófst svokallaður 100 miðaleikur og mun hann standa yfir í tvær vikur eða fram til föstudagsins 20. nóvember. Leikurinn gengur út á að á hverjum degi fá tveir starfsmenn fimm sérmerkta hrósmiða hvor og eiga þeir að veita nemendum þá fyrir að fara sérstaklega vel eftir siðum Flataskóla. Þegar nemandi hefur fengið hrósmiða fer hann til ritara með hann og dregur númer til að staðsetja sig á sérstöku spjaldi sem hangir á vegg við skrifstofuna. Tölvupóstur er sendur til foreldra og þeim tilkynnt að barnið þeirra hafi fengið hrósmiða fyrir góða hegðun og sé þar með orðið þátttakandi í leiknum. Áður en leikurinn byrjar er ákveðið hvaða röð er vinningsröð og einnig hvaða umbun verður fyrir þá röð. Algjör leynd hvílir yfir þessu og verða úrslit tilkynnt í morgunsamveru mánudaginn 23. nóvember og umbunin veitt í framhaldi af því.

Til baka
English
Hafðu samband