Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Þjóðarsáttmáli um læsi undirritaður

01.09.2015
Þjóðarsáttmáli um læsi undirritaður

Síðast liðinn föstudag var aðild Garðabæjar að þjóðarsáttmála um læsi staðfest með undirritun samnings í hátíðarsal Flataskóla. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri og Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður Grunnstoðar Garðabæjar undirrituðu samninginn að viðstöddum gestum. Markmið þjóðarsáttmálans er að öll börn geti við lok grunnskólans lesið sér til gagns. Samningurinn var undirritaður í tvíriti og er önnur útgáfan, sem er mjög smá, varðveitt í stóru Íslandslíkani ásamt samningum ráðuneytisins við önnur sveitarfélög á landinu.
Við athöfnina fluttu nemendur úr Tónlistarskóla Garðabæjar nokkur tónlistaratriði.

Nánari upplýsingar um þjóðarsáttmála um læsi eru á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins.

Myndir frá athöfninni er að finna í myndasafni skólans.

 

Til baka
English
Hafðu samband