Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Innkaupalistar 2014-2015

05.08.2014
Innkaupalistar 2014-2015

Innkaupalistar fyrir 5. til 7. bekk eru komnir á vef skólans. Eins og síðast liðin ár hefur skólinn séð um innkaup á gögnum fyrir nemendur í 1. - 4. bekk s.s. stílabækur, möppur, lím og fl. Þetta fyrirkomulag hefur gefist vel og leitað er eftir tilboðum í hagstæðasta verðið. Nemendur koma sjálfir með ritföng eins og blýanta, liti, yddara og strokleður til að hafa í pennaveskinu. Foreldrar greiða síðan innkaupsverð fyrir pakkann sem verður innheimt í haust. Hægt er að nálgast innkaupalistana fyrir 5. til 7. bekk hér.

Til baka
English
Hafðu samband