Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Skíðaferð á föstudaginn 25. apríl

23.04.2014
Skíðaferð á föstudaginn 25. aprílVetrarferð á sumardegi.  Enn og aftur er stefnt að vetrarferð í Bláfjöll og er þetta síðasti möguleiki okkar á þessari önn. Reiknað er með að farið verði núna föstudaginn 25.apríl. Veðurspáin er góð og starfsmenn fjallanna lofa að taka vel á móti okkur.

Farið verður með alla nemendur skólans nema 6. bekk sem fóru í skíðaferð fyrir vetrarleyfi. Við stefnum á að fara af stað í tveimur hópum.  Fyrri hópurinn þ.e. 4., 5. og 7. bekkur leggur af stað kl. 8:30. Því er mjög mikilvægt að sá hópur mæti kl. 8:15 á föstudaginn.

Seinni hópurinn þ.e. 5 ára bekkur og 1. -3. bekkur leggur af stað upp úr kl. 9:00. Sá hópur þarf ekki að mæta fyrr en upp úr kl. 8:30.

Lagt verður af stað heim úr Bláfjöllum klukkan 13:45 og áætluð koma í Flataskóla er um 14:30. Krakkakot er síðan opið fyrir þá sem þar eru skráðir.

Markmið ferðarinnar er að kynnast vetraríþróttum og njóta góðrar útiveru í fersku fjallalofti. Þeir sem vilja og hafa tök á geta tekið með sér skíði, snjóbretti, sleða eða þotur. Í Bláfjöllum er einnig hægt að leigja búnað ef vilji er fyrir slíku. Yngri börnin verða öll í gulum endurskinsvestum merktum skólanum og verður þeim skipt í hópa milli starfsmanna. 

Skólinn greiðir rútuferðina fyrir nemendur en þeir sem vilja leigja skíði eða bretti greiða kostnað vegna þess sem er 2000 krónur fyrir skíði, skó og stafi eða bretti/skó. Foreldrafélagið ætlar að greiða  í skíðalyftur fyrir börnin. Foreldrar og forráðamenn eru hvattir til að koma með í þessa ferð en þeir sem vilja koma með okkur í rútu þurfa að greiða gjald í rútuna (1000 krónur).

Bréf með nánari upplýsingum hefur verið sent heim.

Til baka
English
Hafðu samband