Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

3. bekkur í heimsókn á Hönnunarsafnið

02.04.2014
3. bekkur í heimsókn á Hönnunarsafnið

Nemendur í 3. bekk heimsóttu Hönnuarsafn Íslands í síðustu viku og fengu leiðsögn um sýninguna "Ertu tilbúin frú forseti". Þar eru sýnd föt, skór og aðrir fylgihlutir sem frú Vigdís Finnbogadóttir notaði í forsetatíð sinni á árnum 1980 - 1996. Þarna var einnig hægt að sjá orður sem Vigdís fékk á meðan hún starfaði sem forseti Íslands. Nemendur fengu orður sem þeir báru á meðan á heimsókninni stóð. Var ekki annað að sjá en að nemendur nytu sýningarinnar enda var hún mjög fróðleg og skemmtileg. Hægt er að lesa frekar um hana á vef Hönnunarsafns Íslands. Myndir frá ferðinni eru í myndasafni skólans. 

Til baka
English
Hafðu samband