Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Viðurkenning fyrir fyrirmyndarverkefni

26.11.2013
Viðurkenning fyrir fyrirmyndarverkefni

Á uppskeruhátið samstarfsáætlana ESB í Hafnarhúsinu í Reykjavík þann 22. nóvember s.l. fékk comeníusarverkefnið "Sköpunarkrafturinn - listin að lesa" (Art of Reading - Power of Creativity) viðurkenningu sem fyrirmyndarverkefni í flokki grunnskóla. Ingibjörg Baldursdóttir bókasafnsfræðingur og Kolbrún Svala Hjaltadóttir kennsluráðgjafi stýrðu verkefninu og settu upp bás á hátíðinni þar sem þær kynntu það og sýndu gögn frá vinnunni. Verkefnið var unnið veturna 2010 - 2012 í samvinnu við 5 önnur lönd í Evrópu. Lesa má um verkefnið hér á vefsíðu skólans. 

Umsögn um verkefnið var á þessa leið: "Verkefnið var vel skipulagt og fjölbreytt. Nær allir nemendur skólans tóku þátt í því ásamt nær öllu starfsfólki skólans. Foreldrar tóku einnig þátt. Lögð var áhersla á að verkefnið félli inn í skólanámskrána og margt af því sem unnið var hefur öðlast sess í skólanum samanber lestrarmaraþon, ratleikur, bókaklúbbar og lestrarátak. Verkefnið jók áhuga nemenda á lestri og var framkvæmd og kynning þess til fyrirmyndar".

Hópur stúlkna úr 7. HG í Flataskóla söng lagið "Undir þínum áhrifum" eftir Stefán Hilmarsson og dansaði frumsaminn dans sem eitt af dagskráratriðum hátíðarinnar. Myndir frá hátíðinni má sjá á vefsíðu skólans.

 

Til baka
English
Hafðu samband