Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

100 miða leikurinn hefst í dag

04.11.2013
100 miða leikurinn hefst í dag

Í dag mánudag fer af stað í skólanum "100 miða leikurinn" en hann er hluti af SMT-skólafærni og lýkur honum fösutdaginn 15. nóvember. Áhersla er lögð á yfirsiði okkar, ábyrgð og virðingu og þá siði sem gilda á öllum svæðum. Leikurinn gengur út á að tveir starfsmenn á dag fá hvor um sig fimm sérstaka hrósmiða sem þeir eiga að gefa 10 nemendum sem þeir telja að fari sérstaklega vel eftir siðum Flataskóla. Nemendur vita ekki hvaða starfsmenn eru með miðana hverju sinni. Leikurinn stendur yfir í 10 virka daga og eru því samtals 100 miðar í gangi. Miðarnir sem nemendur fá fara síðan á sérstakt spjald sem er staðsett á hurðinni hjá skrifstofu skólans. Markmið leiksins er að nemendur fari eftir siðum skólans, sýni fyrirmyndarhegðun og allir hjálpist að við að skapa jákvætt andrúmsloft í skólanum. Áherslan er á siði sem gilda á öllum svæðum og yfirskriftina ábyrgð og virðing. Þátttakendur eru allir starfsmenn og nemendur skólans. Verðlaunin í leiknum eru fyrirfram ákveðin og skrifuð á blað ásamt upplýsingum um hvaða röð á spjaldinu vinnur. Þessar upplýsingar eru settar í lokað umslag sem er geymt á skrifstofu skólans en sýnilegt öllum. Þriðjudaginn 19. nóvember verður tilkynnt hver verðlaunin eru og hvaða tíu nemendur fá þau.

Til baka
English
Hafðu samband