Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Göngum í skólann

02.09.2013
Göngum í skólannGöngum í skólann hefst 4. september
Verkefninu Göngum í skólann verður hleypt af stokkunum í sjöunda sinn miðvikudaginn 4. september næst komandi og lýkur svo formlega með alþjóðlega Göngum í skólann deginum miðvikudaginn 2. október.
Markmið verkefnisins eru að hvetja til aukinnar hreyingar með því að auka færni barna til að ferðast með virkum og öruggum hætti í skólann. Á vef Samgöngustofu má lesa frétt um mikilvægi þess að kenna börnum á umferðina, en þar eru meðal annars etalin upp 10 góð ráð sem mikilvægt er að foreldrar og forráðamenn hafi í huga og fræði börnin sín um.
Á síðasta ári tóku milljónir barna frá yfir 40 löndum viðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Hér á landi voru 63 skólar skráðir til leiks og hefur þátttakan vaxið jafnt og þétt gegnum árið, en fyrsta árið voru þátttökuskólar 26.

Þeir skóla sem ætla að taka þátt í Göngum í skólann þurfa að skrá sig til þátttöku með því að senda póst á orvar@isi.is í síðasta lagi í dag, miðvikudaginn 28. ágúst. Ekkert kostar að skrá sig.

Að Göngum í skólann verkefninu standa eftirtaldir aðilar: Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, Samgöngustofa, Embætti Landlæknis, Ríkislögreglustjóri, Mennta- og menningarmálaráðuneytið, Heimili og skóli og Slysavarnarfélagið Landsbjörg.
Til baka
English
Hafðu samband