Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Spjaldtölva í 3. bekk

04.10.2012
Spjaldtölva í 3. bekkNýlega voru keyptar tvær spjaldtölvur í skólann. Þriðji bekkur fékk þær lánaðar í gær til að prófa í fyrsta sinn. Allir í bekknum fengu að leysa nokkur stærðfræðidæmi. Sumir voru að prófa þetta í fyrsta sinn. Nemendur unnu í hringekju þ.e.a.s. litlum hópum með mismunandi verkefnum á hverjum stað og á einni stöðinni var spjaldtölvan. Var ekki annað að sjá en að nemendum fyndist þetta áhugavert og skemmtilegt og var athyglin tvímælalaust við verkefnið. Nokkrar myndir eru í myndasafni skólans.
Til baka
English
Hafðu samband