Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Guðmundarlundur

04.10.2012
Guðmundarlundur

Í morgun var farið í Guðmundarlund í Kópavoginum með alla nemendur og starfsfólk skólans. Það er liður í heilsueflandi skóla að fara út í náttúruna og eiga notalega samveru og hreyfa sig. Þetta var yndisleg stund í afar góðu veðri þrátt fyrir að áliðið sé á haustið. Trén í lundinum skýldu okkur vel fyrir golunni og nemendur og starfsfólk fóru í leiki og grilluðu pylsur og fóru í njósnaferðir um göngustígana í skóginum. Allt gekk slysalaust fyrir sig og myndir frá ferðinni eru á myndasafni skólans.

Vefsíða Guðmundarlundar

 

null

Til baka
English
Hafðu samband