Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Sólarveisla 4. bekkja - Hellisgerði

01.10.2012
Sólarveisla 4. bekkja - HellisgerðiNemendur í fjórða bekk fengu fyrstu sólarveislu skólaársins í síðustu viku. Fyrirkomulag sólarveislna vetrarins er þannig að nemendur koma með hugmyndir og þær sem fá flest atkvæði eru settar í pott og ein dregin í hvert skipti sem kemur að veislu. Í þetta skiptið varð hjólaferð fyrir valinu. Hjólað var í Hellisgerði í Hafnarfirði þar sem garðurinn skartaði sínum fegurstu haustlitum. Nemendur léku sér góða stund og gæddu sér í sparinesti í tilefni dagsins. Allir skemmtu sér konunglega. Myndir frá ferðinni er að finna í myndasafni Flataskóla.
Til baka
English
Hafðu samband