Foreldrar fengu fræðslu
12.01.2012
Í morgun fengu foreldrar fræðslu hjá nemendum í 6. bekk um Norðurlöndin sem haldin var á skólasafninu. Nemendur hafa búið til vefi á Wikispaces með ýmsum fróðleik um Norðurlöndin og þótti tilvalið að fá foreldra í heimsókn og sýna þeim afraksturinn. Kynningarnar voru mjög mismunandi þar sem nemendur réðu sjálfir hvernig þeir nálguðust efnið og kynntu það. Í upphafi verkefnisins tóku nemendur þátt í "Gettu betur" leik á skólasafninu, síðan tók við hugstormun til þess að þeir gætu áttað sig á hvað þeir vildu sýna á vefunum. Að lokinni kynningu buðu foreldrar upp á morgunverð inn í kennslustofu barnanna. Var þetta mjög ánægjuleg og lærdómsrík morgunstund.
Vefina er hægt að skoða hér.