Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lestrarátak 6.OS

24.10.2011
Lestrarátak 6.OS

Lestrarátaki í 6. bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Allir náðu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu reiknað með.
Markmið bekkjarins var að lesa samtals 5.958 blaðsíður í ár en þegar búið var að telja heildarfjölda blaðsíðna kom í ljós að nemendur höfðu lesið samtals 10.393 blaðsíður sem er frábær árangur.
Útbúinn var lestrarveggur á netinu til að halda utan um hvaða bækur nemendur lásu, þeir skrifuðu stutta umsögn um hverja lesna bók og gáfu henni einkunn.
Skólasafnið veitti þremur mestu lestrarhestum árgangsins viðurkenningaskjöl og bókaverðlaun fyrir frábæran árangur.
Í fyrsta sæti var Arnar Jökull, í öðru sæti Indíana Lind og í því þriðja var Stefán Orri.
Bekkurinn fær að sjálfsögðu að hafa lestrarbikar árgangsins hjá sér í vetur eftir að hafa náð markmiði sínu með slíkum glæsibrag.
Óskum við þeim innilega til hamingju með árangurinn.

Til baka
English
Hafðu samband