Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

5. bekkur á Bókasafni Garðabæjar

24.10.2011
5. bekkur á Bókasafni Garðabæjar

Nemendur í 5. bekk fóru í vikunni ásamt Ingibjörgu bókasafnsfræðingi í heimsókn á Bókasafn Garðabæjar. Markmiðið með heimsókninni var að tryggja að nemendur þekktu almenningssafnið í bænum og vissu hvað það hefði upp á að bjóða. Rósa barnabókavörður tók á móti hópnum, sýndi þeim safnið og svaraði spurningum sem nemendur höfðu útbúið fyrir heimsóknina. Þeir nemendur sem ekki áttu bókasafnsskírteini fengu það afhent i heimsókninni og eiga örugglega eftir að nýta það vel sérstaklega í öllum skólafríum.

Til baka
English
Hafðu samband