Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lestrarátak 5. bekkja

13.10.2011
Lestrarátak 5. bekkja

Lestrarátaki í fimmta bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Lestraráhuginn var gríðarlega mikill og lásu nemendur samtals 29.165 blaðsíður eða hver nemandi las að meðaltal 747 blaðsíður. Gaman var að sjá hversu áhugasöm börnin voru við lesturinn en þau skráðu umsagnir um bækurnar á lestrarvegg bekkjanna á 5AG og 5KÞ
Nemendur settu sér markmið strax í upphafi átaksins um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Flestir náðu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu reiknað með.
Skólasafnið veitti þremur mestu lestrarhestum hvors bekkjar viðurkenningaskjöl og bókaverðlaun fyrir frábæran árangur. Nemendur í 5. KÞ unnu lestrarbikarinn í ár. Hver árgangur á bikar sem veittur er þeim bekk sem les flestar bækurnar og heldur sá bekkur bikarnum yfir veturinn. Við óskum 5.KÞ innilega til hamingju með árangurinn.
Í tilefni af úrslitunum voru fjórir nemendur beðnir að lesa upp úr skemmtilegum bókum sem þeir höfðu lesið í lestrarátakinu. Baldvin Birnir og Arndís Halla lásu fyrir hönd 5. KÞ en Helga Signý og Þormóður fyrir 5. AG. Eiga þau hrós skilið fyrir fallegan og skemmtilegan lestur.

Myndir af lokaathöfninni er að finna í myndasafni 5. bekkja.

Til baka
English
Hafðu samband