Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Gisting á bókasafninu

11.04.2011
Gisting á bókasafninu

Það er hefð fyrir því að sjöundu bekkir fái að gista á skólasafni Flataskóla einu sinni á vetri og lesi þá sérvalda bók. Bekkjarkennarinn og bókasafnsfræðingurinn gista með þeim og er þetta afar vinsæll viðburður sem nemendur minnast oft á frá skólaveru sinni í Flataskóla. Nú hafa allir bekkirnir þrír gist í vetur og tekið þátt í maraþonlestri.
Nemendur mættu á skólasafnið eftir kvölmat og höfðu meðferðis svefnpoka, dýnur og annað sem nauðsynlegt er að hafa með þegar gist er að heiman. Markmiðið var að lesa sem mest. Mikið var lesið enda lesefnið mjög spennandi.
Rithöfundur bókarinnar kom í heimsókn og ræddi við nemendur um sögusviðið og sagði þeim frá þjóðsögum sem tengjast sögunn Ýmislegt óvænt gerðist í myrkrinu sem gerði dvölina á skólasafninu enn eftirminnilegri. Um morguninn buðu foreldrar upp á flottan morgunverð í matsal skólans og eftir það var farið í sund. Hefðbundið skólastarf hófst að þessu loknu og þrátt fyrir lítinn svefn tókust nemendur á við daginn með bros á vör eftir skemmtilegt kvöld.
Nemendur klára að lesa bókina heima hjá sér og vinna verkefni í tengslum við hana.

Til baka
English
Hafðu samband