Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

2. bekkur á Árbæjarsafninu

02.03.2011
2. bekkur á ÁrbæjarsafninuÍ gær þriðjudaginn 1. mars fóru nemendur í 2. bekk  á Árbæjarsafnið og skoðuðu íslenska þjóðbúninga. Dagný tók á móti hópnum og sagði þeim margt skemmtilegt um þjóðbúninga og ýmislegt tengt þeim. Það var gaman að sjá þessa fallegu búninga. Á meðan helmingur nemenda skoðaði sýninguna var hinn helmingurinn úti að leika sér á Árbæjarsafnasvæðinu og þar voru mörg gömul og falleg hús en einnig voru þar landnámshænur sem vöktu mikla lukku. Sjá myndir úr ferðinni.
Til baka
English
Hafðu samband