Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Bangsavika á skólasafninu

02.11.2010
Bangsavika á skólasafninu

Mikið fjör hefur verið á skólasafninu undanfarna daga en þar hefur bangsavika verið haldin hátíðleg. Alþjólegi bangsadagurinn er 27. október og þessa viku koma yngstu nemendur skólans með bangsa að heiman í bókasafnstímann sinn. Nemendur í Stjörnuholti (skólahópur frá Bæjarbóli) tóku einnig þátt í bangsadagskrá ásamt böngsunum sem þeir höfðu með sér að heiman.
Bangsasögur voru lesnar, horft á myndband, börnin lituðu myndir og sagan var sögð af því hvernig fyrsti leikfangabangsinn varð til.
Ferðabangsinn Sveinbjörn hefur nú ferðast heilmikið með nemendum og starfsfólki skólans. Lesið var upp úr nokkrum ferðasögum hans.
Mikill áhugi er hjá yngstu nemendunum að ferðast með Sveinbjörn og hvetjum við alla til að lesa ferðasögurnar hans á heimasíðu skólasafnsins.

Sjá fleiri myndir frá skólasafninu af bangsaheimsóknunum.


Til baka
English
Hafðu samband