Heim Beint á efnisyfirlit síðunnar

Lestrarátak 4. bekkja

10.10.2008
Lestrarátak 4. bekkja

Lestrarátaki í 4. bekk er nú lokið en það stóð yfir í eina viku. Nemendur settu sér markmið strax í byrjun átaksins um hversu mikið þeir ætluðu að lesa. Flestir náðu þessu markmiði sínu sem er mjög jákvætt og sumir lásu mun meira en þeir höfðu reiknað með.
Útbúinn var bókaormur á netinu til að halda utan um hvaða bækur nemendur lásu, hve margar blaðsíður og síðast en ekki síst skrifuðu nemendur stutta umsögn um hverja lesna bók.
Skólasafnið veitti þremur mestu lestrarhestum árgangsins viðurkenningaskjöl og bókaverðlaun fyrir frábæran árangur.
Lestrarátakið tókst í alla staði vel og lásu nemendur gríðarlega mikið á þessari einu viku. Vonandi halda þeir áfram að lesa mikið því góð lestrarkunnátta er undirstaða fyrir góðum námsárangri.

Til baka
English
Hafðu samband